ÁFANGAGEYMSLA

Classroom repository

Áfangageymsla er lausn sem Github býður nemendum og kennurum í forritun að nota til að auðvelda samskipti og yfirferð verkefna. Þessi aðferð hefur reynst vel í fjarkennslu og einnig í staðnámi. Til að nemendur geti notað áfangageymsluna verða þeir að vera með Github reikning (Github user account)

Verkefnavinna og yfirferð

Í áfangageymslunni eru möppur sem á að skila verkefnum í. Þú getur búið til, breytt og eytt gögnum í áfangageymslunni en geymslan sjálf er eign Tækniskólans

  • Það er mikilvægt að nemendur vinni verkefnin sín í áfangageymslunni til að sýna fram á eigið vinnuframlag.
  • Áfangageymslan er aðeins aðgengileg einum nemanda (Github user) og kennara áfangans
  • Kennari leiðréttir verkefni beint í áfangageymslu nemenda.
  • Einkunn er gefin fyrir verkefnin í Innu

  • Skjáfyrirlestur: Áfangageymsla stofnuð