VEFFORRITUN

Í áfanganum eru helstu grunnatriði í vefforritun kynnt. Farið er í miðlara/biðlara uppbyggingu vefsíðna, samskipti þeirra og hlutverk hvers hluta. Nemendur vinna að smíði vefja með miðlaramáli. Lögð er áhersla á málfræði og endurnýtni á kóða í gerð vefja.

Kennslan byggist á fyrirlestrum í upphafi kennslustundar og síðan eru verkefni unnin samkvæmt verklýsingum. Ýtarleg námsáætlun og verklýsingar eru í Innu ~/VEF2VF05CU

Kennslufyrirkomulag

Kennslan byggist á fyrirlestrum í upphafi kennslustundar og síðan eru verkefni unnin samkvæmt verklýsingum.
Verkefnalýsingar birtast Innu.

Verkefnayfirlit

  1. Grunnatriði í tölvusamskiptum
    • HTTP staðalinn, request / response
    • Beining (static routing)
  2. Flask vefforritun
    • Beining (dynamic routing)
    • Flask grunnsíður (Templates)
  3. JSON
  4. JSON/API
  5. Form
  6. Vaframinni
  7. Gagnavinnsla
  8. Lokaverkefni

Ýtarlegar verkefnalýsingar eru í INNU

  • Öll verkefni eiga að vera vistuð í Github geymslu
  • Nemendur skila tenglum (link) í INNU sem vísa á Github geymslu og viðeigandi verkefni.
  • Yfirferð verkefna miðast við stöðu verkefna á skiladegi